Vissir þú að skothelt ráð til að halda gallabuxunum eins og nýjum er að fylla skál af vatni, skella buxunum í og hræra í með 2 dl af salti – en saltið skerpir á litnum og kemur í veg fyrir að efnið upplitist.
Sjá einnig: Snilld: Segðu sokkaskrímslinu stríð á hendur!
Svo er líka hægt að smella gallabuxunum í poka og setja í frysti en þannig má draga úr ólykt, ótrúlegt nokk!
Sjá einnig: Mögnuð sex barna móðir: Hannaði SJÚKLEGA flott þvottahús!
Hlaupa fötin í þvotti? Lita þau frá sér? Þvoðu á köldu. Ekki spurning. Þannig kemur þú ekki bara í veg fyrir að fötin komi pínulítil út – heldur tryggir þú einnig að fallegu flíkurnar smiti ekki frá sér og eyðileggi annan þvott.
Hér fara nokkur frábær ráð til að nota í þvottahúsinu – stórsniðugt!
Klara Egilson er íslenskur blaðamaður búsettur í Osló. Hún hefur gengt ritstörfum frá unga aldri og gaf út sína fyrstu smásögu sex ára að aldri: “Kartaflan sem fann alltaf vitlausa lykt” en hefur skrifað allar götur síðan og er ekki ókunn íslenskum fjölmiðlum. Hún er elsk á orð, fagra muni og umfram allt; fjölbreytileika mannlífsins. Klara gegnir í dag stöðu aðstoðarritstjóra HÚN.IS og tekur á ýmsu í umfjöllunum sínum.