Við á Hún.is leitum að öflugum aðstoðarritstjóra til að styrka einn öflugasta kvennavef landsins enn frekar.
Viðkomandi mun vinna náið með ritstjóra að:
· Skipuleggja skrif og verkefni fyrir penna.
· Vinna sjálfstætt við gerð og framsetningu efnis.
· Þróa vefinn og samskipti við okkar mikilvægu lesendur.
· Skrifa greinar sem samræmast ritstjórnarstefnu Hún.is
Hæfniskröfur:
· Mjög góð íslenskukunnátta skilyrði sem og mikil færni í textaskrifum
· Reynsla af framsetningu efnis á internetinu og samfélagsmiðlum. Leiðtoga og skipulagshæfni
· Góð tölvukunnátta
· Góð enskukunnátta
· Sjálfstæði í vinnubrögðum og eldmóður í starfi
Óskað er eftir starfsferilskrá með umsóknum og stuttu bréfi þar sem tekin er fram ástæða á umsókn og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Aðstoðarritstjóri þarf að geta hafið störf fljótlega.
Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir að senda umsóknir á ritstjórn@hun.is. Umsóknarfrestur er til og með 9. janúar 2014.
*****************
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.