Þessi sérlega glæsilega íbúð er við Hrólfsskálamel á Seljarnarnesi. Um er að ræða nýtt vandað 3ja hæða íbúða lyftuhús á glæsilegum útsýnisstað á sunnanverðu Seltjarnarnesi.
Húsið er hannað af T.ark ehf og byggt af Stólpum ehf. Bílakjallari er undir húsinu og fylgir stæði þessari íbúð.
Nútímaþægindi og kröfur hafðar í fyrirrúmi við hönnun íbúðanna og það er stutt í alla þjónustu.
Innréttingar eru íslensk sérsmíði frá Brúnás og borðplötur eru úr steini. Eldunareyjar eru í flestum íbúðum, spanhelluborð, blástursofn með sjálfhreinsibúnaði og háfur.
Fataskápar eru íslensk sérsmíði frá Brúnás.
Gólf verða ílögð og rykbundin, án megin gólfefnis. Gólf á baðherbergjum og þvottahúsum verða flísalögð. Flísalagður sturtubotn er hluti af baðgólfi.
Staðsteyptir og hlaðnir veggir verða pússaðir, spartlaðir og málaðir. Sama gildir um létta innveggi. Veggir á baðherbergjum verða flísalagðir í tæplega hurðarhæð. Veggir í þvottahúsum verða málaðir.
Rofar og tenglar verða settir upp í samræmi við raflagnateikningar. Lýsing í íbúðum verður í eldhúsi, þvottahúsi og baðherbergjum. Mynddyrasími fylgir og verður settur upp og tengdur. Raftæki í eldhúsi eru af Siemens gerð.
Íbúðir eru að fullu hitaðar upp með miðstöðvarofnum. Í baðherbergjum verða handklæðaofnar.
*ATH! Myndir sem tengdar eru við íbúðina eru ekki endilega innan úr viðkomandi íbúð. Þær geta verið af íbúð á einhverri annarri hæð hússins eða spegilmynd íbúðarinnar!
Nánari upplýsingar á Borg fasteignasölu s: 519-5500/ fastborg@fastborg.is Héðinn B. Ásbjörnsson löggiltur fasteignasali í síma: 8484806 / 519-5500 hedinn@fastborg.is hjá BORG fasteignasölu.
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.