Ananas fromage er kjörin eftirréttur um hátíðarnar.
1 dós ananashringir
3 egg
5 dl rjómi
1 dl sykur
7 gelatinblöð
Hella úr ananas dósinni í sigti og láta safan renni í skálina
Leggja gelatinblöðin í bleyti ca 5 mínútur
Stífþeyta eggjahvítur og rjóma í sitt hvora skálina
Hræra eggjagulum og sykri saman
Taka gelatínblöðin úr vatninu og setja þau í pott á plötu við lágan hita og bræða. Hræra gjarnan með gaffli í svo þau verði alveg kekklaus og fljótandi. Bæta ananas safanum út í og hella yfir eggjahræruna. Blanda stífþeyttum rjómanum við og síðan stífþeyttum eggjahvítunum og jafna varlega við hræruna.
Setja síðan fromagen í aðra skál og láta aðeins stífna. Skreyta síðan með niðurskornum ananas.
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.