Hún Demi Moore hefur reynt hvað hún getur að halda sig frá sviðsljósinu síðastliðið ár, eftir skilnaðinn við Ashton Kutcher. Hún hefur verið undir smásjá allra erlendu slúðurblaðanna og þeir hafa reglulega fjallað um það hversu illa aumingja Demi líti út og svo framvegis.
Nú virðist samt vera að draga frá sólu hjá leikkonunni því hún sást með óþekktum manni úti að versla á laugardaginn í Los Angeles. Demi leit út fyrir að skemmta sér alveg konunglega með þessum manni, brosti út fyrir bæði eyru og hló og þessi umræddi karlmaður hélt á pokunum fyrir hana eins og sönnum herramanni ber.
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.