Bóndadagurinn er á föstudaginn og þá er um að gera að bjóða manninum í þínu lífi út að borða í tilefni dagsins. Við ætlum því að gefa heppnum einstakling gjafabréf á Argentína steikhús.
Argentína Steikhús var opnað 27. október 1989 og er uppáhaldsveitingastaður fjölmargra Íslendinga.
Hvað er meira rómantískt en að sitja við kertaljós í notalegu og rólegu umhverfi með eðal steik á disknum? Æðislegt! Argentína hefur sýnt það ár eftir ár að þeir eru fremstir meðal jafningja og það er alveg ljóst að enginn verður svikinn af því að fara út að borða hjá þeim.
Ef þú vilt komast í pottinn þarftu bara að setja athugasemdina „Argentína já takk“ hér fyrir neðan. Við drögum út á fimmtudag. Vertu með!
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.