Í morgun birtum við reynslusögu konu sem hafði átt við ofát árum saman og aldrei fundið neina lausn. Á morgun er Afmælisfundur Oa-Samtakanna og er hann opinn öllum.
Hér er fréttatilkynning samtakanna í heild:
Afmælisfundurinn er opinn öllum matarfíklum, jafnt virkum OA félögum sem nýliðum og fundurinn er einnig opinn fyrir aðstandendur og aðra sem hafa áhuga á að kynna sér starf OA samtakanna. Fundurinn er í Von Húsnæði SÁÁ Efstaleiti 7, Reykjavík,föstudaginn 27. febrúar klukkan 19:30-21:30
OA félagar eru karlar og konur á öllum aldri um allan heim sem eiga sér þá ósk að halda sér frá matarfíkn og vilja bera boðskap samtakanna um bata áfram til þeirra sem enn þjást.
3-4 OA félagar munu segja sögu sína
Tengdar greinar:
Borðar þú til að gleyma? – 10 atriði sem lýsa tilfinningalegu ofáti
„Ég var búin að reyna óteljandi megrunarkúra“
8 algeng mistök sem konur gera sem bitna á heilsunni
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.