Þetta kom heldur betur á óvart, en óþekki drengurinn Chris Brown (25) er víst orðinn faðir. Hann á 9 mánaða stúlku með fyrirsætunni Nia (31) en Chris er þekktur fyrir að vera söngvari og einnig fyrrverandi kærasti Rihanna en hann mun hafa beitt söngkonuna líkamlegu ofbeldi í sambandi þeirra.
Chris þarf væntanlega að útskýra sig fyrir kærustunni sinni Karrueche Tran (25) en hann hefur átt í vinasambandi við Nia í nokkur ár en aldrei verið í sambandi með henni svo þetta kemur öllum á óvart.
Fyrst var greint frá þessu á TMZ en þeir birtu líka þessa mynd af barninu:
Chris talaði um það í morgunþætti á Power 105,1 þann 23. febrúar að hann langaði til að eignast börn.
„Ég væri alveg til í tvö, jafnvel bara eitt, ef það fyrsta væri strákur,“ sagði Chris. Hann segir svo frá því að hann eigi nú þegar stelpu, svo við getum reiknað með því að hann reyni einu sinni enn til að eignast strák.
Tengdar greinar:
Chris Brown hent út úr meðferð og settur í steinninn
Rihanna og Chris Brown hætt saman fyrir fullt og allt? Sjáðu hvað þau segja!
Eru Rihanna og Leonardo DiCaprio ástfangin á laun?
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.