Stórsöngkonan og leikkonan, Bette Midler, var gestur í þætti Jimmy Kimmel í síðustu viku. Bette, sem selt hefur yfir 30 milljón plötur og unnið til þriggja Grammy-verðlauna, tók sig til og söng hinar ýmsu athugasemdir sem Kim Kardashian hefur látið gossa á Twitter.
Það er svolítið spaugilegt að sjá konuna, sem söng Wind Beneath My Wings, syngja fleygar setningar frá Kimmie. Og breyta setningum á borð við “Ugh, I hate falling asleep with my makeup on” í gullfallega tóna.
Tengdar greinar:
Manstu þegar Kim Kardashian reyndi að meika það sem söngkona?
Katy Perry og Kim Kardashian í glimrandi gír á tískuviku í París
Kim Kardashian eins og þú hefur ekki séð hana áður
Guðrún Veiga er fædd og uppalin á Eskifirði. Hún er mannfræðingur að mennt, mikill matgæðingur, mamma og múltítasker. Guðrún Veiga hefur skrifað fyrir hina ýmsu miðla, unnið í sjónvarpi og skrifað eitt stykki matreiðslubók.