Hérna fáum við eina dýrðlega og djúsí af blogginu hennar Tinnu Bjargar. Það er laugardagur. Það má nú alveg baða sig aðeins í kókosbollum, er það ekki.
Jú, ég hélt það líka. Ég mæli að sjálfsögðu enn og aftur með því að þú fylgist með Tinnu Björgu á Facebook – þú verður ekki svikin/n.
Sjá einnig: Kókosbolludraumur – Uppskrift
Kókosbollubomba
1 marengsbotn
250 gr bláber
250 gr jarðarber
1/2 granatepli
500 ml þeyttur rjómi
4 kókosbollur
100 gr Malteserskúlur
- Brjótið marengsbotn í litla bita og dreifið yfir fat eða mót.
- Skerið jarðarber í bita og sáldrið helmingnum yfir marengsbotninn ásamt helmingi af bláberjum og aldini úr 1/4 granatepli.
- Skerið kókosbollur í bita, blandið saman við þeyttan rjóma og smyrjið yfir marengsbotninn. Skreytið með Maltesers kúlum og afgangi af jarðarberjum, bláberjum og granateplum.
- Þið getið notað hvaða marengs sem er, keypt hann tilbúinn eða bakað sjálf. Ég nota oftast brúnan marengs með Corn Flakes en stundum breyti ég til og hef hann hvítan.
- Berin þurfa ekki endilega að vera fersk, núna setti ég fersk bláber ofan á bombuna en frosin undir rjómann. Margir eiga eflaust frosin aðalbláber frá berjatíðinni í sumar og haust, þau er tilvalið að nota í svona rétt. Jarðarberin kaupi ég hins vegar alltaf fersk. Stundum hef ég líka sett frosin hindber í kókosbollubombuna, það er ofboðslega gott.
Möguleikarnir eru endalausir svo það er um að gera að prófa sig áfram, útkoman getur eiginlega ekki klikkað.
Sjá einnig: Grillgott með kókosbollum og karamellum
Guðrún Veiga er fædd og uppalin á Eskifirði. Hún er mannfræðingur að mennt, mikill matgæðingur, mamma og múltítasker. Guðrún Veiga hefur skrifað fyrir hina ýmsu miðla, unnið í sjónvarpi og skrifað eitt stykki matreiðslubók.