Þá hefur hulunni verið svipt af nýjustu auglýsingaherferð tískurisans Calvin Klein. Það eru súpermódelið Kendall Jenner og Simon Nessman sem sitja fyrir á myndunum teknum af ljósmyndarann Alasdair McLellan. Calvin Klein tóku sniðugt skref í fyrra þegar stjarnan Justin Bieber var andlit herferðarinnar ásamt Lara Stone. Myndirnar fengu gríðarmikla athygli og #mycalvins æðið tröllreið öllu á Instagram. Kendall sem er meðlimur Kardashian klíkunnar mun eflaust líka gera gott mót fyrir Calvin Klein en Kendall hefur 21.8 milljón fylgjendur á Instagram.
Sjá einnig: Kendall Jenner: 19 ára og á íbúð sem kostar 186 milljónir
Sjá einnig: Justin Bieber og Kendall Jenner í Vouge