Myndir frá París, New York, London og Milanó eru alltaf áberandi í kringum tískuvikurnar og keppast stærstu tímaritin um að vera fyrst með fréttir og myndir af staðnum. Hér í Evrópu fer kannski minna fyrir fréttum af tískuvikum í Asíu en þær eru meira en þess virði að skoða og fylgjast með. MAC cosmetics sá um förðun á hluta af sýningunum á tískuvikunni í Seuol, og birtu þau þessar fallegu baksviðs myndir á tumblr síðu sinni.
Myndirnar eru frá sýningum Mag & Logan, Steve J & Yoni P og Kaal E.Suktae.
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.