Þær Selma og Elísa Hildur skipa hljómsveitina Bergmál og öll þeirra tónlist er frumsamin. Þær hafa ákveðið að gera árið 2015 svolítið skemmtilegt á Youtube og ætla að semja „fréttaveitulag“ í hverjum mánuði um helstu fréttir þess tiltekna mánaðar.
Sjá einnig: Hvað var að frétta í febrúar?
Hér kemur marsmánuður frá þeim skvísum:
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.