Jennifer Lawrence hefur nýlokið tökum á framhaldi myndarinnar The Hunger Games en hún ber nafnið The Hunger Games: Catching Fire. Hún sást nú á dögunum á leið sinni á hárgreiðslustofu að láta lita ljósu rótina sína en leikkonan virðist geta borið hvaða háralit sem er en hún hefur stundum verið dökk, stundum ljós og svo jafnvel rauðhærð en er alltaf jafn sæt.
Jennifer vill alls ekki gera mikið úr því að vera leikkona og segir að margir ofmetnist alveg svakalega í þessum heimi:
Ég er ekki að reyna að vera dónaleg en það þarfnast ekki mikilla gáfna við að leika. Ég get ekki orðið montin með mig, ég er ekki að bjarga mannslífum. Það eru læknar og slökkviliðsmenn sem bjarga fólki, ég er að leika í bíómyndum, það er heimskulegt,
sagði Jennifer í viðtali nýlega.
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.