Í nýrri auglýsingaherferð Versage er Kate Moss í fararbroddi og gerir það að sjálfsögðu með sóma.
Gaurarnir sem eru með henni eru að sjálfsögðu hárlausir, olíubornir og bronslitaðir en þetta eru frekar flottar myndir og töff uppstillingar og spennandi að sjá fleiri myndir frá þessari töku.
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.