Kanilsnúðar eru alltaf svo góðir með kaffinu. Þessir frá Gulu,rauður,grænn og salt.com eru emð þeim betri get ég sagt ykkur.
Heimsins bestu kanilsnúðar
Snúðar
1 kg hveiti
5 dl mjólk, fingurvolg
½ bréf þurrger
125 g sykur
1 tsk kardemommudropar (eða vanilludropar)
½ tsk salt
1 egg
150 g smjör, skorið í litla teninga
Fylling
125 g smjör, mjúkt
2 msk kanill
6 msk sykur
1 egg og perlusykur til skrauts
- Blandið mjólk og geri saman í skál. Hellið öllum hráefnunum fyrir bolludeigið í skál, að smjörinu undanskildu og hrærið. Bætið smjörinu saman við og hnoðið því vel saman við í allt að 10 mínútur.
- Setjið plastfilmu yfir skálina og látið deigið hefast í amk. klukkustund.
- Skiptið deiginu í tvennt og fletjið út í ca. 60 cm breiðan ferning.
- Blandið kanil og sykri saman í skál.
- Smyrjið 1/2 af smjörinu á deigið og stráið síðan helmingi af kanilsykrinum yfir smjörið. Leggið deigið saman og skerið í 12-14 lengjur. Snúið upp á lengjurnar og vefjið þær saman í snúð, annar endinn upp og hinn niður (engar áhyggjur þið fattið þetta). Gerið eins með hinn helminginn af deiginu. Ef þið viljið getið þið að sjálfsögðu gert snúðana á hinn venjubundna máta, en þessir líta bara svo vel út og gaman að prufa eitthvað nýtt.
- Látið snúðana hefast í um hálftíma. Penslið með léttþeyttu eggi og stráið perlusykri yfir.
- Setjið inn í 225°c heitan ofn í um 10-12 mínútur eða þar til þeir eru orðnir gylltir.