Geðhjálp býður til málþings um þunglyndi í tilefni af útgáfu bókarinnar Ég átti svartan hund eftir Matthew Johnstone
Málþingið verður á Hótel Reykjavík Natura, miðvikudaginn 6. maí frá kl 14 til 17. Fundarstjóri Anna G. Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Geðhjálpar
14.00 – 14.15 Í föruneyti Svarta hundsins.
Hrannar Jónsson, formaður Geðhjálpar.
14.15 – 14.30 Í feluleik með Svarta hundinum.
Kara Ásdís Kristinsdóttir, verkefnisstjóri hjá Geðhjálp.
14.30 – 15.30 Tamið og talað um Svarta hundinn.
Matthew Johnstone, höfundur Ég átti svartan hund.
15.30 – 15.45 Tónlistaratriði.
Magga Stína.
15.45 – 17.00 Samstuð.
Veitingar, bóksala, áritun höfundar.
Matthew Johnstone heldur einnig fyrirlestur um seiglu á Kex Hostel laugardaginn 9. maí kl. 11.
Vinsamlega tilkynnið þátttöku á viðburðina með nafni í gegnum netfangið verkefnisstjori@gedhjalp.is.
Aðgangur ókeypis.
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.