Söngvaranum Chris Brown brá heldur í brún þegar hann kom heim úr helgarferð. Chris hafði eytt helginni í Las Vegas til að fagna 26 ára afmælinu sínu en þegar hann kom heim á miðvikudaginn tóku á móti honum kvennmannsföt í forstofunni.
Chris og öryggisverðir hans gengu með honum inn í húsið en þar fundu þeir ástarjátningu sem spreyjuð hafði verið á eldhúsbekkinn. Við frekar rannsökun af Chris og fylgdarsveinum hans fannst 21 árs gömul kona nakin upp í rúminu hans.
Chris hringdi strax á lögregluna sem handtóku konu fyrir innbrot og skemmdarverk. Söngvarinn tók mynd af konunni og deildi á Instagram síðu sinni. Hann lét fylgja með myndinni hvað konan hafði aðhafst heima hjá honum en hún hafði hent öllu dóti dóttur hans og hundsins hans. Í staðinn setti hún ýmsa vúdú hluti víðsvegar um húsið ásamt því að spreyja nafn sitt á bílana hans.
Svo virðist sem konan hafi eytt þó nokkrum tíma í húsi Chris þar sem lögreglan fann út að einhver hafði notað eldhúsið og gleymt að vaska upp eftir sig.
Sjá einnig: Chris Brown deilir myndum af dóttur sinni í fyrsta sinn
Sjá einnig: Chris Brown hent út úr meðferð og settur í steinninn
Sjá einnig: Á 9 mánaða gamla stúlku sem engin vissi af
Kristín Helga er óumdeilanlega mesti Kardashian aðdáandi Íslands og nærliggjandi landa. Hennar heitasta ósk er að vera vinkona Khloe Kardashian.
Hún hefur áhuga á öllu mögulegu og þar á meðal að lesa og skrifa um fræga fólkið í Hollywood.