Ég skelli stundum í svona ís eftir matinn, tekur enga stund og ekki skemmir fyrir að hann er hollur og góður. Best er að borða hann strax og hann er tilbúinn, hann er nefnilega frekar fljótur að þiðna.
Hráefni
2 frosnir bananar skornir í bita
½ bolli frosin jarðaber
2 msk möndlumjólk
½ tsk vanilla
Best er að skera banana í sneiðar/bita áður en þeir eru frystir.
Setjið bananana og jarðaberin í matvinnsluvél og láttu hana vinna vel. Bætið möndlumjólk og vanillu út í og hrærið þar til áferðin er slétt og fín.
Ég skelli stundum í svona ís eftir matinn, tekur enga stund og ekki skemmir fyrir að hann er hollur og góður. Best er að borða hann strax og hann er tilbúinn, hann er nefnilega frekar fljótur að þiðna.
Heimildir: SkinnyMommy
Mamman er búsett í úthverfi höfuðborgarsvæðissins ásamt eiginmanni og tveimur hressum og heilbrigðum börnum. Mamman mun skrifa um ýmislegt sem við kemur börnum, s.s. uppeldi, hreyfingu, matarvenjur og fleira