Kvikmyndahátíðin í Cannes er ein elsta og virtasta kvikmyndahátíð í heimi. Þessi glæsilega hátíð er nú haldin í 68. sinn og stendur hún yfir í 11 daga, eða frá 13.maí til 24.maí. Að sjálfsögðu láta skærustu stjörnur kvikvmyndaheimsins sig ekki vanta enda einkennist hátíðin af miklum glæsileika, taumlausum veislum og almennri gleði.
Sjá einnig: Hvar er fimm vingjarnlegustu og hættulegustu borgir heims að finna?
Við elskum að skoða myndir frá rauðum dreglum – hvar svo sem þeir eru. Hérna má sjá nokkrar gullfallegar myndir frá opnunarhátíð Cannes þann 13.maí síðastliðinn:
Lupita Nyong´o
Sienna Miller
Natalie Portman ásamt Benjamin eiginmanni sínum
Fyrirsætan Karlie Kloss.
Sean Penn og Charlize Theron
Tom Hardy
Sjá einnig: SAG 2015: Rauði dregillinn