Börn Michael Jackson hafa ítrekað reynt að forðast sviðsljósið síðan faðir þeirra féll frá árið 2009. Slúðurmiðlar vestanhafs hafa þó haft augun á Paris Jackson undanfarið en stúlkan sú arna er víst ekki lítil lengur.
Sjá einnig: Svona leit svefnherbergi Michael Jackson út þegar hann lést – Myndir
Hin 17 ára gamla Paris er komin með kærasta, sá heppni er fótboltamaðurinn Chester Castellaw og er parið ansi duglegt við að birta myndir af sér á samfélagsmiðlum.
Að sögn heimildarmanns tímaritsins InTouch er Paris yfir sig ástfangin.
Paris er yfir sig ástfangin af Chester. Hún hefur kynnt hann fyrir fjölskyldunni og sagt þeim að hann sé sálufélagi hennar.
Ótrúlega krúttlegt allt saman.