Þó Iggy Azalea hafi farið heim af Billboard hátíðinni í gærkvöldi sem Besti Rapparinn var óumdeilt að Nicki Minaj, sem einnig var tilnefnd í sama flokki – trónir á toppi kvenkyns rappara á heimsmælikvarða, þegar drottningin steig á svið.
Íklædd kolsvörtum leðurjakka og eggjandi sokkabuxum steig Nicki á svið, sleikti út um og greip um klofið á sér svo í tók, svo mikil voru tilþrifin. Nicki, sem orðin er 32 ára gömul, tverkaði, dillaði og blikkaði áhorfendur sem stóðu eins og þrumu lostnir og dáleiddir yfir frammistöðu rappdrottningarinnar sem er á tónleikaferðalagi sem stendur til að kynna nýjustu breiðskífu sína, PINKPRINT.
Sjá einnig: ONLY: Ný smáskífa Nicki Minaj óður til nasisma Hitlers?
Hátíðin var haldin í Las Vegas og setti Nicki allt í botn á sviði, nuddaði lostafull eigin líkama, rak út rassinn og söng HEY MAMA meðan David Guetta stóð og hljóðblandaði með tilþrifum í bakgrunni.
Atriði Nicki hófst á sálarkenndum smellinum The Night Is Still Young og stefndi í ballöðukennda frammistöðu þegar Guetta skipti snögglega yfir í þungan rapptakt og NIcki tók yfir sviðið með HEY MAMA.
Og Nicki gaf allt í botn með slegið hár og íklædd plastbrjóstahaldara og silkisokkaböndum, en dansarateymið samanstóð af gneistandi heitum skvísum sem allar tverkuðu í takt við Nicki sem átti sviðið. Ekki var Guetta síðri, þar sem hann sló saman höndum og hvatti áhorfendur áfram til dáða meðan NIcki tverkaði eins og óð væri.
Á fingri NIcki mátti sjá glitra á demantshring, en rappdrottningin trúlofaði sig í síðasta mánuði og gengur brátt upp að altarinu með rapparanum Meek Mill, en demantshringur Nicki er hjartalaga – að sjálfsögðu, eins og hæfir drottningu rappheimsins enda best.
Ótrúlegt þykir mörgum að Nicki skuli hafa tapað titlinum til Iggy Azelea en löðrandi kynþokkinn sem jaðraði við klámfengna framkomu á sviði tryllti salinn sem samanstóð af fremsta tónlistarfólki heims og sögðu aðstandendur Billboard hátiðarinnar að Nicki hefði komið, séð og sigrað í gærkvöldi.
Hér má sjá Nicki flytja atriði sitt Billboard hátíðinni – svaðaleg er hún!
https://youtu.be/bJqfhI5YRts
Klara Egilson er íslenskur blaðamaður búsettur í Osló. Hún hefur gengt ritstörfum frá unga aldri og gaf út sína fyrstu smásögu sex ára að aldri: “Kartaflan sem fann alltaf vitlausa lykt” en hefur skrifað allar götur síðan og er ekki ókunn íslenskum fjölmiðlum. Hún er elsk á orð, fagra muni og umfram allt; fjölbreytileika mannlífsins. Klara gegnir í dag stöðu aðstoðarritstjóra HÚN.IS og tekur á ýmsu í umfjöllunum sínum.