Fyrirsætan Chrissy Teigen birti mynd af húðslitum sínum á Instagram fyrir stuttu, til þess að vekja athygli á að samfélagið er búið að gleyma því hvernig alvöru fólk lítur út.
Ákveðin þróun hefur átt sér stað síðustu ár þar sem vinsældir myndvinnsluforrita hafa aukist gríðarlega. Eitt sinn voru það helst tímarit sem áttu við myndir af fyrirsætum en nú er það orðið þannig að einstaklingar eru farnir að ,,photoshoppa” myndir af sér áður en þeim er deilt inn á samfélagsmiðla.
Þrátt fyrir að margir standi í þeirri meiningu að fræga fólkið, eins og Beyonce eða fyrirsætur hjá Victoria´s Secret, séu með flekklausan líkama en raunin er önnur. Þær eru víst mennskar – alveg eins og við hin.
Sjá einnig: Elskaðu þig eins og þú ert – Þú ert alveg nóg
Sjá einnig: Svona lítur Beyonce út „óphotoshoppuð“
Sjá einnig: Var orðin þreytt á að vera „photoshoppuð“ – Tók til sinna ráða
Sjá einnig: Bieber brjálaður vegna ásakana um Photoshop
Kristín Helga er óumdeilanlega mesti Kardashian aðdáandi Íslands og nærliggjandi landa. Hennar heitasta ósk er að vera vinkona Khloe Kardashian.
Hún hefur áhuga á öllu mögulegu og þar á meðal að lesa og skrifa um fræga fólkið í Hollywood.