Kylie Jenner sýnir sífellt meira hold á myndum sínum en hún er ekki feimin frekar en systur hennar. Kylie tekur gjarnan sénsa í klæðaburði en þessi mynd sýnir stúlkuna léttklæddari en nokkru sinni fyrr.
Hún er í litlum bikini topp og sjálfsöryggið skín af henni en hún setti þessa mynd inn á Instagram en um 24,5 milljón manna fylgja henni á samskiptamiðlinum.
Hún birti svo þessa mynd af sér í gær en Kylie er að sitja fyrir þessa dagana.
Hvað finnst ykkur kæru lesendur? Er þetta of mikið hold sem hún er að sýna eða eigum við bara að sætta okkur við að svona er þetta bara í dag?
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.