Við fengum nýja skrifstofu á dögunum og langaði að gera hana flotta. Við veltum fyrir okkur hvað okkur langaði að gera og ein hugmyndin sem kom upp var að gera einn veginn í rýminu að risastórri korktöflu.
Þá kom upp stóra spurningin. Hvar fær maður efni í svoleiðis?
Sjá einnig: Gerðu alvöru mjólkurfroðu í örbylgjunni – Ótrúlega einfalt!
Við fórum auðvitað á Google og leituðum að orðinu „korkur“ og það fyrsta sem kom upp var auðvitað heimasíða Þ. Þorgrímssonar. Við, með hvatvísina að vopni, drifum okkur niður eftir til þeirra í Ármúlann og fjárfestum í GULLFALLEGUM korki.
Útkoman er svo glæsileg og við erum gjörsamlega í skýjunum með þetta allt saman.
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.