Nýlega sást til Selenu Gomez og Ed Sheeran yfirgefa partý saman. Þau fóru saman í búðina 7-Eleven og náðu þar ljósmyndarar myndum af þeim. Eftir heimildum að dæma, þá rétt náði parið að fara úr partýinu áður en Justin Bieber mætti á svæðið. Fyrir tveimur árum síðan voru sögusagnir á lofti um að það væru einhverjir logar á milli þessa tveggja og nú er spurning hvort þessi tvö eiga eftir að verða nýjasta Hollywood parið.
Sjá einnig: Yngsti Ed Sheeran aðdáandi í heimi?
Söngvarinn Ed Sheeran: Er hann að slá sér upp með Selenu Gomez?
Sjá einnig: Selena Gomez fékk nóg af Justin Bieber og lét hann róa
Sæt saman: Ed og Selena
Heimildir: Mirror
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.