Rachel Farrokh (37) var nær dauða en lífi fyrir ekki svo löngu síðan og vill deila með heiminum sögu sinni. Hún gat ekki lengur staðið og fjöldi sjúkrahúsa neituðu að taka við henni vegna ástands hennar, en eitt sjúkrahús í Kaliforníu ákvað að taka við henni og nú getur hún í fyrsta skiptið í langan tíma staðið upprétt.
Rachel, sem er leikkona, hefur þurft að glíma við þennan hættulega sjúkdóm í um áratug. Núna hlýtur hún meðferð við sjúkdómi sínum og hefur það bjargað lífi hennar. Hún var orðin tæp 20 kíló sem er skelfilega lítið fyrir manneskju sem er um 170 sentimetrar á hæð. Læknar töldu of hættulegt fyrir hana að gangast undir meðferðina og að hún myndi eflaust ekki lifa það af.
Eiginmaður Rachael, Rod, hætti í starfi sínu til að sjá um hana allan sólarhringinn og er hann skiljanlega himinlifandi yfir því að hún fái loks þá umönnun sem hún þarf. Læknar munu koma til með að gefa henni kaloríuríka næringu smátt og smátt og þar með auka skammt hennar jafnt og þétt til að koma meltingu hennar í gang aftur.
Rod hefur tekið upp myndbönd af konu sinni í meðferðinni og sett þær á netið. Hún getur staðið upprétt í fyrsta skiptið í marga mánuði en hann stendur þétt við bakið á henni og segir hann að meðferðin sé erfið og ströng. Slík meðferð kostar mjög mikið, svo þau hafa þurft að stóla á fjárframlög frá fólki og eru þau því fólki mjög þakklát.
Rachel segir að baráttan sín hafi byrjað þegar hún var ung og vildi losa sig við nokkur kíló og ekki hafi liðið á löngu þar til hún var orðin skelfilega mjó. Henni finnst sárt að horfa til baka og sjá að anorexían hafi rænt hana mörgum árum af lífi hennar.
Betri tímar: Rachel með manni sínum Rod
Fluttningurinn á annað sjúkrahús reyndist vera lífshættulegt fyrir Rachel
Sjá einnig: „Anorexía rænir þig æskunni“ – Vildi vera ung alltaf og svelti sig frá 10 ára aldri
Glöð að fá loks meðferð við veikindum sínum
Rachel þurfti aðstoð við að standa upprétt
Sjá einnig: „Djöfullinn sjálfur sagði mér að svelta mig“ – var nær dauða en lífi af anorexíu
Áður fyrr var Rachel alltaf grönn en átröskunin náði tökum á lífi hennar
Skinn og bein: Eiginmaður hennar ber hana niður stigann á heimili þeirra
Þakklát: Rachel þakkar öllum þeim sem studdu hana í baráttu sinni
Heimildir: Dailymail
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.