Hin 23 ára gamla Harnaam Kaur er með nokkuð sem heitir hirsutism eða ofloðna. Það veldur því að hún er með óvenjulegan hárvöxt í andlitinu sem lýsir sér sem skeggvöxtur. Nú hefur Harnaam ákveðið að hætta að raka sig og leyfa andlitshári sínu að vaxa og nú situr hún fyrir í brúðarmyndatöku, þar sem hár hennar eru skreytt listilega með blómum.
Henni hafði lengi liðið illa út af útliti sínu en ákvað einn daginn að hún vildi ekki láta það stjórna lífi sínu og ákvað að skipta um trú og valdi Skih, sem er trú sem bannar að hár sé klippt. Eftir það fór henni að líða betur með sjálfa sig og leyfði hárinu að vaxa.
Harnaam ákvað að skipta um trú: Trúin bannar að klippa hár.
Sjá einnig: Innblásið af Indlandi
Hún lætur ekki skeggvöxtinn hafa áhrif á vellíðan sína lengur
Sjá einnig: Ganges fljótið á Indlandi – Varúð ekki fyrir viðkvæma
Heimildir: Dailymail
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.