Eggaldin er eitthvað sem ég hef ekki beint vanist að borða í gegnum tíðina, enda var það ekki til á Íslandi á mínum yngri árum. En fyrir nokkrum árum smakkaði ég grillað eggaldin í fyrsta skipti og núna mér finnst sumarið eiginlega ekki komið fyrr en ég er farin að grilla þetta að minnsta kosti einu sinni í viku. Mæli með að þið prófið.
Hráefni
Eggaldin
Olía
Salt
Pipar
Fetaostur
Balsamic Edik
Furuhnetur
Klettasalat (má sleppa)
Þegar búið er að þrífa og þurrka eggaldinið þá sker ég það langsum í u.þ.b. 1 cm sneiðar. Síðan smyr ég olíu á báðar hliðar og salta og pipra smá. Gott er að leyfa þessu að standa í smá tíma, eða í 10-15 mínútur áður en farið er með út á grill. Eggaldinið er síðan grillað á báðum hliðum þangað til það gljáir fallega.
Áður en ég set fetaostinn ofan á sneiðarnar þá stappa ég hann aðeins saman og dreifi honum jafnt yfir. Strái nokkrum furuhnetum yfir og jafnvel klettasalati eða einhverju öðru grænu sem ég á og helli svo smá balsamic ediki yfir allt saman.
Mamman er búsett í úthverfi höfuðborgarsvæðissins ásamt eiginmanni og tveimur hressum og heilbrigðum börnum. Mamman mun skrifa um ýmislegt sem við kemur börnum, s.s. uppeldi, hreyfingu, matarvenjur og fleira