Óðinn Bjarni varð fyrir því óláni að reiðhjóli hans var stolið úr hjólageymslunni á Loft Hostel í Bankastræti um tvöleytið í nótt. Óðinn starfar á Hostelinu og þetta myndband náðist af mönnunum tveimur þar sem þeir velja sér hjól til að stela eins og ekkert sé sjálfsagðara.
Vinsamlegast hafið samband við Óðinn á Facebook eða í síma 8497732 ef þið hafið einhverja hugmynd um hverjir þessir menn eru eða ef þið sjáið hjólið.
[facebook_embedded_post href=”https://www.facebook.com/raklesif/videos/10154116137040550/”]
Hjólið er mjög einstakt svo það ætti að vera auðvelt að þekkja það ef þið sjáið það á förnum vegi.
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.