Miley Cyrus tók sig til nýlega og setti inn skrautlegar myndir af sér stanslaust í 24 klukkustundir. Fylgjendur hennar á Instagram höfðu því nóg að skoða síðustu daga. Litadýrðin og frumlegheitin eru allsráðandi hjá þessari stelpu, svo vægt sé tekið til orða.
Maísstöngull, appelsínugul risasólgleraugu og playboysloppurinn góði.
Ekkert eðlilegra: Henni finnst gott að slaka á með geimhjálm og að liggja með hundinum sínum í rúmfötum sem eru innblásin af skyndibita.
Hún elskar dýrin sín: Það er ekki sjaldan sem Miley myndar sig með gæludýrunum.
Glimmeraugnskuggi, hárkolla og glitrandi hanski: Gervisígarettan toppar þetta svo.
Sjá einnig: Miley Cyrus verður skrautlegri í fatavali sínu með hverjum deginum!
Stella Maxwell: Nýja kærastan og Miley mynda á sér afturendann í gegnsæjum sokkabuxum. Líklegt er þó að höfuðið á Stellu sé sett inn í myndina.
Á leið á ströndina? Varalitaeyrnalokkar, stjörnusundbolur og hjartaskór.
Sjá einnig:Miley Cyrus loðin undir höndum
Mikið er talað um að Miley reyki grunsamlegar sígarettur úti um víðan völl. Ætli það sé eitthvað annað en venjulegt tóbak í þessari?
Maður verður auðvitað að halda útlitinu í lagi: Miley liggur á pizzakoddanum sínum með andlitsmaska.
Sjá einnig: Miley Cyrus: „Ég er tvíkynhneigð“
Fær aðstoð við að binda uppáhalds hárgreiðsluna sína. Fastur snúður upp á kollinum.
Heimildir: Dailymail
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.