Þá er því hjónabandi opinberlega lokið. En orðrómur þess efnis að Odom og Kardashian væru að íhuga að taka saman aftur hefur lengi verið á kreiki. Ekki alls fyrir löngu fluttu slúðurmiðlar fregnir af því að þau væru hjá hjónabandsráðgjafa og ætluðu sér að leysa málin. Khloe sótti fyrst um skilnað frá Lamar í desember árið 2013 og hafa þau verið skilin að borði og sæng síðan.
Sjá einnig: Verður Khloe Kardashian næsta Bachelorette?
Khloe hefur sést opinberlega með körfuboltakappanum James Harden undanfarið og er talið að þau eigi í ástarsambandi.