Eru þessi hlutir eitthvað sem þú hefðir áhuga á að eiga? Kardashian æðið hefur náð yfir lönd og höf, svo ef þú ert mikill aðdáandi getur þú orðið þér úti um alls kyns hluti tengda þeim. Úrvalið er auðvitað stórkostlegt – hálsmen, kubbar, kerti og glæsileg sokkapör.
Ein frægustu svipbrigði Kim Kardashian hafa verið sett á hálsmen.
Bolur sneisafullur af þessum skemmtilegu svipbrigðum.
,,The Lord” Scott Disick á peysu er nokkuð sem enginn má missa af.
Khole Kardashian snyrtibudda er nauðsynlegt þarfaþing.
Er þetta Kim eða Jesús? Skiptir það máli, því það er ekki svo mikill munur á þeim tveim, eða hvað?
Heimaföndraður hringur af Kim er til sölu á næsta interneti.
Eitthvað fyrir börnin: Kardashian systur ná til yngstu kynslóðarinnar með þessum skemmtilegu Lego köllum.
Ef þið tókuð ekki eftir hálsmeninu, skoðið þá þessa einstöku eyrnalokka.
Kveikið á kerti og skapið seiðandi andrúmsloft með Khloe.
Það gæti nú verið smart fyrir ofuraðdáendur að hafa þetta andlit á hverjum fingri.
Sjá einnig: Kim baðar sig í silfraðri málingu
Kim og Kanye er sokkapar sem smellpassar saman.
Fyrir græna fingur: Caitlyn Jenner blómapottur myndi sóma sér vel inn á hverju heimili.
North West litla saumuð á derhúfu.
Sjá einnig: North West háorgandi á tískusýningu föður síns
Kylie andlit á dag kemur skapinu í lag.
Er hægt að fá þetta í næstu eplaverslun? Límmiði af nöktum líkama Kim smellpassar yfir Apple merkið.
Heimidlir: Dailymail
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.