Hinn 22 ára gamli Jake Barrett lenti í skelfilegu atviki nýverið, þar sem hann var fluttur á sjúkrahús í skyndi. Hann hafði lagt í vana sinn að nota Crest tannhvíttunarstrimla en klórinn úr strimlunum safnaðist fyrir í blöðru undir tungunni á honum og brenndi gat í gegnum hálsinn á honum.
Jake hafði fundið fyrir gríðarlegum verkjum í 6 daga áður en hann var fluttur á sjúkrahús og þurftu læknar að tæma blöðruna sem var að éta sig í gegnum hold hans. Eftir að læknarnir höfðu tæmt hana, var eftir gríðarlega stórt gat frá munni hans niður í gegnum háls.
Jake vildi fá hvítar tennur með hjálp Crest.
Strimlarnir eru settir yfir tennurnar í efri og neðri góm og látnir bíða á tönnunum í klukkustund.
Gatið sem varð eftir þegar læknarnir voru búnir að tæma vökvafylltu blöðruna undir tungu Jake.
Sjá einnig: Tannhvíttun – Kostir og gallar
Sjá einnig: 9 atriði sem hafa áhrif á hvíttun tanna
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.