Gemma Colley lenti í heldur óheppilegu atviki einn daginn. Hún hafði gefið sér tíma til að fara í brúnkusprautun og gerði þau mistök að gefa ungum syni sínum brjóst nokkrum klukkustundum síðar með þeim afleiðingum að hann varð brúnn á kinnunum, nefinu og í kringum munninn.
Gemma ákvað að deila myndinni af syninum með þeim orðum að nú hefði henni orðið heldur betur á í messunni. Viðbrögðin voru mismunandi og hrundu yfir hana alls kyns ömurlegar athugasemdir, til dæmis um að hún væri að eitra fyrir syni sínum og ætti heldur að halda sig heima og eyða tíma með börnunum, í stað þess að sinna hégómanum með því að láta sprauta á sig brúnku.
Litla krúttið varð brúnn í andlitinu eftir að hafa fengið að drekka hjá mömmu sinni. Móðirin viðurkenndi fúslega að þarna hafi henni orðið á en svarar gagnrýnendum fullum hálsi og segir “Guð forði mér frá því að gera eitthvað fyrir sjálfa mig”
Liturinn var ekki lengi að nást af en gagnrýnisraddirnar voru enn háværar.
Gemma segir að enginn sé fullkominn og að það sé allt í lagi að gera mistök endrum og eins og að það geri hana ekki að slæmri móðir.
Sjá einnig: 10 atriði sem karlmenn taka eftir hjá konum.
Sjá einnig: Það gera allir mistök – Skylduáhorf! – Myndband
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.