Það hefur enginn sagt að foreldrahlutverkið væri auðvelt, það getur meira að segja verið mjög erfitt á stundum. Ég rakst á þennan lista á síðunni Babble og ákvað að deila þessu með ykkur. Ég er alveg sammála sumum af þessum atriðum en alls ekki öllum.
1. Blöðrur
2. Að fylla út sömu upplýsingarnar um tengilið barns, ár eftir ár eftir ár ….. fyrir hvert einasta barn
3. Krúttleg nöfn um kynfæri
4. Allar þessar teiknimyndir
5. Að bíð eftir ÖLLU
6. Brennheit eða ísköld bílsæti
7. Þegar barnið segir þér frá því, 5 mínútum fyrir skólann, að það eigi að koma með sykurlausar heimabakaðar smákökur í skólann.
8. Að taka myndir af smábörnum
9. Að taka með sér smábarn….. hvert sem er
10. Þegar þú getur ekki tekið blundinn þinn
11. Tennurnar sem ætla aldrei að koma upp úr tannholdinu
12. Börn sem þurfa alltaf að vera í fanginu á þér
13. Börnin sem þú getur ekki tekið upp
14. Skórnir sem losna sífellt af fótunum
15. Stundatöflur
16. Símtöl frá skólanum Any phone call from your child’s school.
17.Hiti
18. Krakkar sem beita einelti
19. Foreldrar sem beita einelti
20. Allir staðir sem gefa börnum og öðrum vegfarendum sælgæti
21. Bleiur, pelur og stútkönnur sem leka
22. Fólk sem keyrir alltof hratt í íbúðahverfum
23. Fólk sem glápir á konur sem eru að gefa brjóst
24. Almenningssalerni sem er ekki nógu stórt fyrir 1,5 manneskju
25. Leir
26. Sælgæti á afgreiðsluborðum
27. Stöðluð próf
28. Týndur skór
29. Týndir jakkar, nestisbox og bækur
30. Dagar þar sem öllum leyft að fara fyrr úr skólanum
31. Hlátur Svamps Sveinssonar
32. Barnalæknar sem virðast ekki hlusta
33. Kennarar sem virðast ekki hafa áhuga á því sem þeir eru að gera
34. Foreldrar sem virðast ekki vera að ala börnin sín upp
35. Allar áætlanir
36. Bollar sem leka
37. Hávær leikföng
38. Barnaskór sem ekki er viðlit að koma barninu í
39. Heimanám sem við sem foreldrar skiljum ekki
40. Barnalæsingar á Netflix
41. Fólk sem er ekki sammála þér um uppeldisaðferðir
42. Allskonar ofnæmi
43. Að stíga á LEGO
44. Að gleyma að kaupa bleiur
45. Rannsóknir sem sýna fram á að okkar uppeldisaðferðir eru ekki réttar
46. Að klippa ungbarnaneglur
47. „Börn nú til dags…..“
48. „Foreldrar nú til dags…..“
49.„Þú veist að barnið þitt þarf bara…..“
50. Að fylgjast með barninu til að gá hvort það hafi fengið heilahristing
51. Allar læstar hurðir
52. Æla í bílsætinu
53. Hræðsla við ókunnuga
54. Veitingastaðir þar sem er enginn barnamatseðill
55. Þegar fólk hringir frekar en að senda skilaboð
56. Frekjuköst
57. Þröngir gangar
58. Börn sem þurfa að skipta um föt 13 sinnum á dag
59. Skór sem passa bara í 3 vikur
60. Mjólkin sem rann út fyrir nokkrum dögum
61. Kynlífssamtalið
62. Frægir foreldrar
63. Engin öryggisbelti í rútum og strætóum
64. Innihaldslaust spjall foreldra
65. Ágeng dýr í hverfinu
66. Allt sem er brothætt
67. Fjáraflanir
68. Dauður gullfiskur
69. Kassar með kló til að reyna að vinna eitthvað dót….. gengur sjaldnast upp
70. Að þurfa að endurtaka sig. Að þurfa að endurtaka sig. Að þurfa að endurtaka sig.
71. Að vera sagt að slaka á
72. Stanslausar áhyggjur
73. Þegar börnin okkar taka upp okkar ósiði
74. Eitthvað til að narta í
75. Barnapössunin sem klikkar
76. Barnapían sem svarar aldrei
77. Börn sem vilja ekki vera með hatta
78. Veik börn sem anda/hósta/hnerra/snýta sér á börnin sem ekki eru veik
79. Hversu rétt foreldrar okkar höfðu fyrir sér
80. Að eiga aldrei reiðufé
81. Að fá aldrei að hafa baðherbergið fyrir sig
82. Lús
83. Að þurfa að „pína“ barnið til að klæða sig almennilega
84. Magakrampi
85. Að koma barninu til að nota kopp
Að lokum vil ég endilega benda foreldrum á að njóta hverrar mínútu í lífi barnsins því þetta tímabil kemur ekki aftur
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.