Tori Spelling (42) hefur heldur betur verið að gera vel við sig að undanförnu. Hér sést hún koma út af snyrtistofunni Medical Spa í Calabasas í Bandaríkjunum. Athygli vakti að andlit hennar var virkilega rautt og flekkótt og fregnir herma að hún hafi gengist undir 4 meðferðir á andlitinu þessar 2 klukkustundir sem hún var á stofunni.
Tori hefur einnig verið í fríi með fjölskyldu sinni og lifað í vellystingum, samkvæmt Instagram-reikningi leikkonunnar, en samt sem áður hefur líferni hennar og fjölskyldu hennar verið á milli tannanna á fólki undanfarið. Eiginmaður hennar, Dean McDermott, skuldar fyrrum eiginkonu sinni himinháar upphæðir í barnameðlag og hefur nú sú fyrrverandi lagt fram kæru gegn Dean og krefst þess að hann greiði skuldina.
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.