Þetta slys átti sér stað í Moskvu 20. janúar. Barnið er í Mitsubishi bifreið sem er að taka fram úr en ökumaður missir þá stjórn á bifreiðinni og fer í veg fyrir Scania vöruflutningabílinn. Við áreksturinn kastast eins árs gömul, ættleidd, stúlkan út úr bílnum og endar á veginum.
Litla stúlkan fékk smá höfuðáverka en slapp annars nokkuð vel. Ekki fylgdi fréttinni hvers vegna barnið var yfir höfuð laust í bílnum eða hvort einhverjir eftirmálar verði vegna þessa.
Athugið að þetta myndband er frekar óhuggulegt.