Maður gerði tilraun með Samsung-símann sinn og lagði hann í bleyti í Coca Cola í tvær mínútur og komst að því að síminn stóð af sér það bað. Hann hafði áður sett þennan síma tvisvar sinnum í vatn og hann lifði þolraunina af. Eflaust eru margir sem eru hrifnari af öðrum símum en Samsung, en fyrir klaufa og brussur eru þeir klárlega málið.
Sjá einnig: Einstaklega vandræðaleg auglýsing frá Samsung – Myndband
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.