Hver elskar ekki skemmtilegar hugmyndir fyrir heimilið sitt. Þessar myndir eru héðan og þaðan af netinu og gefa manni skemmtilegar hugmyndir.
1. Hilla undir hrærivélina sem fer svo inn í skápinn
2. Rekkar sem hægt er að draga út og hengja pönnurnar á
3. Grind til að þurrka leirtau, inni í skápnum
4. Falskar skúffur fyrir framan vaskinn
5. Tímaritahirsla fest inn á skáp til að geyma plastfilmu, álpappír og smjörpappír
6. Notaðu aukaskúffu sem strauborð sem hægt er að brjóta saman
7. Rótargrænmetið í skúffu
8. Hankar fyrir mæliskeiðar innan á skápshurðina
9. Litlar hillur auka plássið til muna
10. Flottur skápur fyrir krydd, pasta og bökunarvörur
11. Hárblásari, sléttu- og krullujárn á sérstökum stað
12. Vasar fyrir allt sem þarf í sturtuna
13. Segull sem hægt er að líma innan á skáp og geyma alla þessa hluti sem týnast alltaf
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.