Sofia Vergara (43) segist vera algjör martröð þegar kemur að undirbúningi brúðkaups síns, í viðtali sínu í Good Morning America. Leikkonan er trúlofuð leikaraanum Joe Manganiello (38).
Sjá einnig: Áður óséðar myndir af hinni stórglæsilegu Sofia Vergara
Sofia kveðst muna öll smáatriði og geti verið alveg óþolandi þegar kemur að því að vilja hafa allt fullkomið, en reyni að láta áhyggjur sínar í hendurnar á brúðkaupsskipuleggjandanum. Kjóllinn hennar er sérsaumaður erlendis og er hann að verða tilbúin, sagði kólumbíski kvenskörungurinn spennt.
Parið kynntist í júní á síðasta ári og trúlofuðu þau sig sex mánuðum seinna. Þeim hafði langað til að hlaupast á brott og gifta sig strax, en fjölskylda Sofia var ekki sátt við þau plön hennar og heimtuðu að það yrði haldin svakaleg veisla, svo hún ákvað að verða við óskum þeirra.
Joe Manganiello og Sofia Vergara hafa verið trúlofuð í 6 mánuði og eru við það að ganga í hjónaband rúmlega ári eftir að þau kynntust.
Sjá einnig: ,,Ég á skelfilega erfitt með að halda mér í formi“
Myndarlegur tilvonandi eiginmaður: Joe leikur með Sofia í Modern Family.
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.