Söngkonan Celine Dion snéri aftur til heimkynna sinna ef svo má kalla í Las Vegas eftir ársfrí frá tónleikaröð sinni í síðasta mánuði. Celine tók sér upphaflega frí frá tónleikaröð sinni til þess að sinna dauðvona eiginmanni sínum Rene Angelil.
Sjá einnig: Celine brotnar niður í sjónvarpi: „Ég mata René gegnum slöngu þrisvar á dag“
Það var þó Rene sjálfur sem bað Celine um að snúa aftur til vinnu sinnar.
Rene, 74 ára, berst nú við krabbamein í hálsi í þriðja skipti, en ótal margar aðgerðir á hálsinum hans hafa gert það að verkum að hann er ófær um að tala. Hinsta ósk Rene er að deyja í örmum eiginkonu sinnar til 20 ára en hann er ekki talinn eiga langt eftir.
Sjá einnig: Vill deyja í örmum eiginkonu sinnar
Upphaflega hafði Celine vonast til að Rene gæti setið á fremsta bekk og fylgst með en þegar að því kom hafði hann ekki heilsu. Celine tileinkaði Rene lag á tónleikunum en á meðan hún söng birtust myndir af honum og strákunum þeirra þremur uppi á stóru tjaldi.
Sjá einnig: Celine Dion hættir við tónleikaferðalag vegna veikinda eiginmanns hennar
https://www.youtube.com/watch?t=267&v=yFMx_WcY9UE&ps=docs
Kristín Helga er óumdeilanlega mesti Kardashian aðdáandi Íslands og nærliggjandi landa. Hennar heitasta ósk er að vera vinkona Khloe Kardashian.
Hún hefur áhuga á öllu mögulegu og þar á meðal að lesa og skrifa um fræga fólkið í Hollywood.