Hún.is greindi frá því á sunnudaginn síðastliðinn að leikkonan Kaley Cuoco væri skilin við eiginmann sinn Ryan Sweeting. Kaley og Ryan gengu í það heilaga þann 13. desember árið 2013 og entist hjónabandið í einungis 21 mánuð.
Sjá einnig: Kaley Cuoco skilin
Hin 28 ára leikkona er sögð hafa endað hjónabandið þar sem Ryan átti við vandamál að stríða sem hann neitaði að kljást við. Ryan var orðinn háður verkjalyfjum eftir að hafa farið í skurðaðgerð á baki árið 2014. Kaley vildi standa við bakið á honum en að hennar sögn gat Ryan ekki haldið sér lyfja- og áfengislausum.
Sjá einnig: Khloe Kardashian kaupir húsið hans Justin Bieber
Ryan hafði áður verið háður verkjalyfjum og glímt við áfengissýki en hafði verið edrú þegar þau kynntust fyrst sem var einungis sex mánuðum áður en þau giftu sig.
Kristín Helga er óumdeilanlega mesti Kardashian aðdáandi Íslands og nærliggjandi landa. Hennar heitasta ósk er að vera vinkona Khloe Kardashian.
Hún hefur áhuga á öllu mögulegu og þar á meðal að lesa og skrifa um fræga fólkið í Hollywood.