Tix Miðasala er kærkomin nýjung miðasölumarkaðinum á Íslandi. Fyrirtækið var stofnað af Sindra Má Finnbogasyni í lok september 2014 og hóf starfsemi þann 1. október 2014. Við hjá Hún.is skelltum okkur í eins árs afmæli Tix á dögunum. Þar var mikið um dýrðir og margir lögðu leið sína í miðborgina til að fagna þessum áfanga með þeim.
Fyrirtækið er nýtt á markaði en starfsmenn hafa samanlagt 20 ára reynslu þegar kemur að rekstri og þróun miðasölukerfa og fyrirtækja.
Ólafur Thorarensen framkvæmdastjóri, Erna Dís Schweitz Eriksdóttir verkefnastjóri
og Sindri Már Finnbogason eigandi Tix.is
Ólafur Thorarensen sagði þetta í samtali við Hún.is: „Við erum bara þrjú sem vinnum hjá Tix enn sem komið er en gerum ráð fyrir að fjölga starfsfólki þegar fram líða stundir og verkefnin krefjast þess.“
Stærstu viðskiptavinir Tix eru án efa Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús og Leikfélag Reykjavíkur (Borgarleikhúsið) en auk þeirra eru Menningarhúsið Hof, Salurinn í Kópavogi og Bíó Paradís öll komin í viðskipti hjá Tix.
Tix.is eru einnig farin að selja á hátíðar eins og Eistnaflug, Iceland Airwaves, Secret Solstice, Sónar Reykjavík, Reykjavík Comedy Festival, Bræðslan, Landsmót Hestamann og fleiri.
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.