Fjölmargir létu ekki rigninguna á sig fá í hádeginu í gær og biðu fyrir utan veitingastaðinn Roadhouse en 50 fyrstu sem mættu í röð fengu gefins borgaramáltíð.
Tilefnið var að nýr borgari, The Great Gatsby, var kynntur til sögunnar og var afgreiðslufólk staðarins klætt í takt við tilefnið.
Til að láta borgarana renna enn betur niður sungu Helgi Björns og Salka Sól nokkur lög og virtust viðstaddir ánægðir með bæði veitingar og tóna.
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.