Gunnleifur Gunnleifsson er markmaður í íslenska landsliðinu og hefur átt glæstan feril til þessa. Við fengum Gulla, eins og hann er oftast kallaður til að svara nokkrum spurningum hjá okkur í Yfirheyrslu.
Fullt nafn: Gunnleifur Gunnleifsson
Aldur: 40 ára
Hjúskaparstaða: Giftur Hildi Einarsdóttur
Atvinna: Knattspyrnu og sjónvarpsmaður
…
Hvað ertu að gera þessa dagana? Ég var að koma frá Tyrklandi og er í nokkurra daga fríi heima hjá mér.
Hver var fyrsta atvinna þín? Unglingavinnan.
Hvað áttu alltaf í ísskápnum? AB mjólk.
Hver er uppáhaldsmaturinn þinn? Svínakjöt
Kíkirðu í baðskápana hjá fólki sem þú ert í heimsókn hjá? Nei og vissi ekki að það væri blæti hjá sumum.
Vandræðalegasta atvik sem þú hefur lent í? Spurði einu sinni konu sem ég kannaðist við hversu langt hún væri gengin með barnið og fékk svar um að hún væri ekki ólétt.
Í hvernig klæðnaði líður þér best? Landsliðsbúningnum
Hefurðu komplexa? Nei, enga komplexa.
Hundur eða köttur? Hvorugt
Ertu ástfanginn? Yfir mig ástfanginn
Hefurðu grátið í brúðkaupi? Nei
Hvernig sérðu þig fyrir þér þegar þú ert komin á eftirlaun? Hamingjusamur með konunni minni, börnum og barnabörnum.
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.