#ElskuPabbi… Þetta myndband hefur verið kallað eitt áhrif mesta myndband ársins 2015. Þar talar ung kona um samband sitt við föður sinn frá því hún var enn í móðurkviði fram á fullorðinsár. Myndbandið segir meira en þúsund orð um það hversu vel við þurfum að halda utan um börnin okkar. Pössum upp á strákana okkar líka, því í öllu gríni fylgir einhver alvara.
Sjá einnig: 28 reglur fyrir feður sem eiga drengi
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.