Söngkonan og X-Factor dómarinn Cheryl Fernandez-Versini eða Cheryl Cole hefur sótt um skilnað frá Jean-Bernard eftir einungis 18 mánaða hjónaband.
Sjá einnig: Er nýja hjónaband Cheryl Cole í vanda?
Sögusagnir segja að þau hafi hætt saman í ágúst en síðast náðist mynd af þeim saman í október á þessu ári þegar Cheryl hélt upp á afmælið sitt. Cheryl á að hafa áttað sig á því að hún gekk að eiga Jean-Bernand eftir of stuttan tíma og að hún hafi blindast ástinni. Þegar leið á hjónabandið kom síðan í ljós að þau voru mjög ólík og lifðu allt öðruvísi lífi.
Sjá einnig: Cheryl Cole orðin rosalega grönn
Fjölmiðlar hafa fyglst grannt með hjónabandi Cheryl og Jean-Bernarnd undanfarna mánuði en þeir fóru síðan á flug þegar bróðir Cheryl flutti inn í húsið hennar en það gerði hann líka þegar Cheryl skildi við fyrsta eiginmann sinn Ashley Cole árið 2010.
Sjá einnig: Cheryl Cole mynduð með þrjár línur af hvítu efni
Cheryl hefur lést mikið síðustu mánuði og var það líklegast neistinn sem kveikti bálið hjá fjölmiðlum um að eitthvað væri í gangi í lífi söngkonunnar.
Kristín Helga er óumdeilanlega mesti Kardashian aðdáandi Íslands og nærliggjandi landa. Hennar heitasta ósk er að vera vinkona Khloe Kardashian.
Hún hefur áhuga á öllu mögulegu og þar á meðal að lesa og skrifa um fræga fólkið í Hollywood.