Jennifer Lawrence (25) kallar ekki allt ömmu sína. Hún fékk Golden Globe verðlaunin í gær fyrir besta leik í gamanmynd, en hún virtist ekki vera í sínu besta formi þetta kvöld því hún lét blaðamann heyra það.
Þetta byrjar á því að blaðamaðurinn, sem greinilega talaði ekki mjög góða ensku spyr: „How do you see yourself for the Oscars?”, eins og hann væri að reyna að fá hana til að tjá sig um Óskarsverðlaunin sem verða veitt 28. febrúar. Jennifer grípur fram í fyrir honum og segir: „You can’t live your whole life behind your phone, bro. You just can’t do that. You gotta live in the now.” Blaðamaðurinn hlær vandræðalega og biðst afsökunnar en hann er örugglega með spurningarnar skrifaðar í snjallsímann sinn og tekur örugglega upp svörin.
Sjá einnig: Jennifer Lawrence segir frá vandræðalegum atvikum
Blaðamaðurinn reynir aftur: „How do you see yourself for the Oscars night?” og þá grípur Jennifer orðið aftur og segir með þónokkrum leiðindum: „We’re at the Golden Globes. If you put your phone down, you’d know that.” Allir fara að hlæja og öll atburðarásin er orðin mjög vandræðaleg.
Þið getið séð þetta hér í myndbandinu:
Jennifer Lawrence calls out a reporter for not looking up from his phone. #GoldenGlobes#backstagehttps://t.co/NYWOvZszTC
— Variety (@Variety) January 11, 2016
Hvað finnst ykkur kæru lesendur? Er hún of grimm við hann eða ekki?
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.