Mariah Carey og James Packer voru kannski svolítið fljót á sér að hugsa um að ganga í hjónaband, sérstaklega vegna þess að þau eru bæði enn gift fyrrverandi mökum sínum.
Sjá einnig: Mariah Carey er trúlofuð billjónamæringi
Vitað er til þess að fyrrum eiginmaður Mariah, Nick Cannon hafi dregið fæturnar í skilnaðarferlinu vegna þess að hann hafi ætlað sér að næla sér í stóran bita af auðæfum söngkonunnar, en svo virðist sem þau mál séu í þann mund að leysast.
James og fyrrum eiginkona hans Erica Packer slitu samvistum árið 2013 og eru þau með gott samkomulag sín á milli. Hún er nú í sambandi með söngvaranum Seal, en talið er að lögin í Ástralíu komi í veg fyrir að löglegur skilnaður geti gengið í gegn.
Sjá einnig: Mariah Carey skartar gylltum sundbol
Gríðarstór: Trúlofunarhringur Mariah er talinn vera 35 karata demantshringur.
Sjá einnig:Mariah Carey: Gleymir textanum á sviði – vægast sagt pínleg uppákoma
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.